Fotbolti.net
17.12.19 - 08:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Iheanacho í ruglinu og allt varð vitlaust - „Veit ekki hvað hann var að hugsa"

Norwich menn ekki hrifnir af Iheanacho.

Norwich menn ekki hrifnir af Iheanacho.

Canon

Mynd: Getty Images

Það átti heldur betur athyglisvert atvik sér stað í leik Leicester og Norwich sem fram fór á laugardag í ensku úrvalsdeildinni. Leiknum lauk með 1-1 jafntefli.

Atvikið átti sér aðdraganda og kom sá eftir rúmlega hálftíma leik þegar Emiliano Buendia, leikmaður Norwich, þurfti á aðhlynningu að halda og leikmenn Norwich spörkuðu boltanum í innkast.
Því miður var ekki hægt að láta myndband fylgja með fréttinni.

Leikmenn Norwich bjuggust því við því að fá boltann aftur eftir innkastið en svo var aldeilis ekki raunin. Ricardo Pereira tók innkast og bendi Kelechi Iheanacho, framherja Leicester, strax á að skila boltanum til Norwich. Iheanacho meðtók ekki skilaboðin og sótti á vörn Norwich með knöttinn.

Iheanacho fór framhjá einum varnarmanni áður en Christhoph Zimmermann tók eina fullorðins tæklingu á Iheanacho og stöðvaði sóknina. Leikmenn Norwich voru bálreiðir við þessa tilraun og töldu þetta stangast á við óskráða háttvísis reglu.

Leikmenn hópuðust í kringum Iheanacho og leikmenn Leicester þurftu að standa í því að ýta andstæðingum frá liðsfélaga sínum. Aukaspyrna var dæmd á brotið á Iheanacho en James Maddison sparkaði knettinum í innkast.

Stuttu seinna jafnaði Leicester leikinn en þá þegar var Brendan Rodgers, stjóri Leicester, tilbúinn með skiptingu. Hann tók Iheanacho af velli fyrir Demarai Gray fyrir 40. mínútu.

Daniel Farke, stjóri Norwich, var virkilega ósáttur með framferði Iheanacho í þessu atviki og tjáði sig eftir leiki.

„Ég er venjulega mjög rólegur en púlsinn fór upp í 200 og ég var brjálaður," sagði Farke um atvikið eftir leik.

„Við spörkuðum boltanum í innkast og í heiminum er háttvísisregla sem virkar þannig að boltinn kemur aftur til okkar. Ég held að allir hafi búist við því á vellinum."

„Við vorum ekki skipulagðir. Iheanacho nýtti stöðuna og reyndi að sækja að marki. Upp úr þessu kom svo aukaspyrna á stórhættulegum staða og það var skoðað hvort minn leikmaður ætti að fá rautt spjald."


Brendan Rodgers, stjóri Leicester, tjáði sig einnig um atvikið eftir leik.

„Iheanacho mislas stöðuna algjörlega, boltinn átti að fara til baka, sem betur fer kom ekkert upp úr þessu," sagði Rodgers eftir leik.

„Oftast er boltanum spilað til baka en í þetta skiptið hefði getað komið rautt spjald, það hefði verið óþægilegt að eiga við. Þeir voru vonsviknir að hann hafi reynt að skora. Ungi Kels... ég veit ekki hvað hann var að hugsa ef ég á að vera hreinskilinn. Hann er heiðarlegur strákur. Sem betur fer kom ekkert út úr þessu," sagði Rodgers.

Rodgers vildi meina að skiptingin á Iheanacho hafi ekki verið út af þessu atviki heldur verið taktísk. Hann vildi fara í 4-3-3 leikkerfið og taldi Iheanacho ekki henta út á vængnum.
Tekinn af velli skömmu seinna.

Tekinn af velli skömmu seinna.

Canon

Mynd: Getty Images

Iheanacho í ruglinu og allt varð vitlaust - „Veit ekki hvað hann var að hugsa"
Canon

Mynd: Getty Images

Iheanacho í ruglinu og allt varð vitlaust - „Veit ekki hvað hann var að hugsa"
Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.