Fotbolti.net
17.12.19 - 10:37
Elvar Geir Magnússon

Pogba veiktist eftir brúðkaupsveislu - Endurkoman tefst

Paul Pogba er veikur eftir brúðkaupsveislu.

Paul Pogba er veikur eftir brúðkaupsveislu.

Canon

Mynd: Getty Images

Endurkoma Paul Pogba tefst þar sem franski miðjumaðurinn hefur misst út tvo æfingadaga vegna veikinda.

Pogba átti að snúa aftur til æfinga í þessari viku en ökklameiðsli hafa haldið honum utan vallar síðan í september.

Pogba fór í brúðkaup bróður síns í Frakklandi á föstudag en þurfti að hitta lækni United daginn eftir. Hann varð síðan enn veikari á sunnudag.

Pogba virtist við hestaheilsu í brúðkaupinu sjálfu miðað við myndbönd á samfélagsmiðlum þar sem hann sást dansa og skemmta sér vel.
Pogba hefur aðeins spilað sex leiki á þessu tímabili.

United á heimaleik gegn Colchester í 8-liða úrslitum deildabikarsins á miðvikudag.

„Pogba er með gæði sem ekki margir miðjumenn í heiminum hafa svo það verður gott þegar hann kemur til baka," segir Ole Gunnar Solskjær, stjóri United.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.