Fotbolti.net
17.12.19 - 18:25
Ívan Guðjón Baldursson

Segja Solskjær vera með háar upphæðir í skattaskjólum

Segja Solskjær vera með háar upphæðir í skattaskjólum
Canon

Mynd: Getty Images

Ole Gunnar Solskjær, knattspyrnustjóri Manchester United, gæti átt yfir höfði sér væna sekt frá norska ríkinu fyrir að svíkja undan skatti.
Ekki er búið að sanna neitt en norsku fréttamennirnir Lars Johnsen og Håvard Melnæs ferðuðust til Lúxemborg og rannsökuðu málið.

Í ítarlegri grein þeirra kemur fram að í síðustu skattaskýrslu Solskjær, sem hefur oft lofað sósíalismakerfið í Noregi opinberlega, tilkynnti hann 22 milljónir norskra króna (300 milljónir íslenskra króna) sem heildarupphæð.

Sú upphæð er ansi lág miðað við upphæðirnar sem Solskjær hefur þénað á síðustu áratugum og ákváðu fréttamennirnir því að rannsaka tengsl hans við umboðsskrifstofuna Lux Nordic, sem sér um fjárhag nokkurra af helstu knattspyrnumönnum Noregs.

Skjólstæðingar Jim Solbakken eru margir hverjir í samstarfi við Lux Nordic og er Solskjær engin undantekning. Talið er að hann sé með 60-80 milljónir norskra króna (820 milljónir isk) í skattaskjólum gegnum Lux Nordic.

Lars og Håvard hafa þetta eftir heimildarmönnum sínum og bæta því við að Solskjær hefur lengi verið með bankareikning hjá Banque Internationale à Luxemborg. Bankinn lánaði honum pening fyrir kaup á húsum hans í Kristiansund og Macclesfield sem eru bæði fullgreidd í dag.

Heimild: Josimar

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.