Fotbolti.net
17.12.19 - 13:17
Elvar Geir Magnússon

Staðfestir tilboð í Haaland

Erling Braut Haaland.

Erling Braut Haaland.

Canon

Mynd: Getty Images

RB Leipzig hefur staðfest að félagið hafi gert tilboð í Erling Braut Haaland. Nú sé beðið eftir því að leikmaðurinn sjálfur taki ákvörðun.

Manchester United hefur áhuga á að fá Haaland en Ole Gunnar Solskjær þekkir leikmanninn vel.

Leipzig er hluti af Red Bull fjölskyldunni rétt eins og félag Haaland, RB Salzburg í Austurríki.
„Við höfum gert tilboð og sýnt honum hvaða hugmyndir við höfum fyrir hann í okkar liði. Nú liggur ákvörðunin bara hjá honum," segir Markus Krosche, íþróttastjóri RB Leipzig.

Haaland, sem er 19 ára, er með riftunarákvæði upp á 20 milljónir punda.

Julian Nagelsmann, stjóri Leipzig, fundaði nýlega með Haaland og kynnti honum fyrir sínum hugmyndum. Talið er að Haaland hafi einnig fundað með Borussia Dortmund.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.