18.01.17 - 15:30
Magnús Már Einarsson
Á West Ham að láta Payet sitja samninginn af sér?

Dimitri Payet.

Mynd: Getty Images

Dimitri Payet.

Mynd: Getty Images
Fótbolti.net er með sérfræðingahorn á síðunni þar sem lesendur geta sent inn fyrirspurnir um allt sem tengist fótbolta á einhvern hátt.
Jósef Róbertsson kom með fyrirspurn sem snýr að máli Dimitri Payet en hann vill fara frá West Ham og neitar að spila með liðinu.
Fótbolti.net fékk Guðmund Steinarsson til að svara henni.

Mig langar að vita hvort einhver sérfræðingur hafi álit á þessu \\\"Payet\\\" máli og hvað finnst viðkomandi að liðið ætti að gera. Varðandi bæði að leikmaður geti nýtt sér \\\"Bosman\\\" regluna og af hverju gangi þetta ekki í hina áttina? Eru leikmenn ef já af hverju eru þeir með svona mikil völd, er eitthvað sem tekur við svona málum fyrir hönd félaganna (sekt,bann frá fótbolta o.s.frv.) Á West Ham (ég myndi gera það) að láta hann sitja samninginn af sér?
Payet-málið er snúið, þarna erum við að tala um líklega besta leikmann félagsins. Réttur félagsins er náttúrulega sá að það getur haldið honum út samningstímann og þannig fryst hann í nokkur ár. Það væri hins vegar dýr leikur fyrir félagið og það er það sem allt snýst um eflaust. Payet veit innst inni að félagið mun ekki halda honum í öll þessi ár og borga honum risalaun fyrir að spila ekkert. Þeir sem stjórna félaginu vita þetta sjálfsagt líka. Það sem er í gangi núna er skák sem snýst um að fá sem mest fyrir leikmanninn.
Hvort leikmenn hafi of mikil völd, já sumir þeirra, sérstaklega bestu mennirnir í liðunum. Þegar leikur liðsins stendur og fellur með einum leikmanni að þá hefur sá leikmaður mikil völd, hvort sem okkur líkar það betur eða verr. Það á ekki að vera svoleiðis en er það samt. Ef að Adrián markmaður West Ham væri að gera það sama og Payet, þá væri komin frétt með (STAÐFEST) fyrir aftan og ekkert vesen. Það er aðeins einn þjálfari sem hefur náð að koma í veg fyrir svona hegðun hjá sínu liði og það er Sir Alex. Um leið og leikmenn fóru að sína hegðun sem þessa þá seldi hann þá. Sýndi þannig að það væri enginn stærri en félagið.
Ég veit ekki til þess að það séu einhver samtök sem taka á þessum málum fyrir félögin, meðan leikmaðurinn virðir samninginn þá er fátt sem félögin geta gert nema að láta þá æfa sér, með ungliðaliðum og þess háttar. Hvað West Ham eigi að gera í þessu, að þá mundi ég reyna að selja fyrir sem mest og í lið í öðru landi en Englandi, hann er ekkert að yngjast og eflaust hægt að kaupa fínan leikmann fyrir þá upphæð sem fæst fyrir hann. Til dæmis Gylfa Sigurðsson.

Guðmundur Steinarsson svaraði spurningunni.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson