18.01.17 - 19:45
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Aron Einar fær nýjan markvörð í sitt lið (Staðfest)

McGregor er búinn að skipta yfir til Cardiff City.

Mynd: Getty Images

Cardiff City, lið landsliðsfyrirliðans Arons Einars Gunnarssonar, hefur fengið í sínar raðir nýjan markvörð. Hann heitir Allan McGregor og kemur á láni frá Hull City út þetta tímabil.
Marco Silva, nýráðinn stjóri Hull, var tilbúinn að leyfa McGregor að fara, þar sem Eldin Jakupovic er aðalmarkvörður og hann vill frekar hafa David Marshall sem varamarkvörð.

McGregor, sem á 35 landsleiki fyrir Skotland, hefur verið hjá Hull frá árinu 2013 eftir að hafa komið til liðsins frá Besiktas í Tyrklandi.
Hinn 34 ára gamli McGregor mun koma saman með nýjum liðsfélögum sínum hjá Cardiff fyrir heimaleikinn gegn Burton Albion á laugardaginn. Þar gæti hann spilað sinn fyrsta leik.
Neil Warnock, stjóri Cardiff, vildi fá markvörð til þess að keppa við Ben Amos og Brian Murphy um stöðuna á milli stangana, en liðið hefur aðeins haldið tvisvar sinnum hreinu í 14 deildarleikjum undir hans stjórn.

Heimild: Sky Sports