Fotbolti.net
18.01.17 - 19:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Bamford farinn til Middlesbrough (Staðfest)

Patrick Bamford var um tíma á láni hjá Middlesbrough.

Patrick Bamford var um tíma á láni hjá Middlesbrough.

Canon

Mynd: Getty Images

Middlesbrough, sem leikur í ensku úrvalsdeildinni, hefur staðfest kaup á sóknarmanninum unga, Patrick Bamford, en hann kemur til liðsins frá Chelsea.

Bamford, sem var í láni hjá Middlesbrough 2014-15 tímabilið, skrifaði undir fjögurra ára samning við Boro.
Kaupverðið á honum er ekki gefið upp, en Chelsea samþykkti tilboð í hann á dögunum.

Bamford átti sitt besta leiktímabil á ferlinum hjá Middlesbrough, en hann er nú kominn aftur til félagsins. Síðast þegar hann var hjá mála hjá félaginu skoraði hann 19 mörk og var valinn í lið ársins í Championship-deildinni.

Þessi 23 ára gamli leikmaður fékk aldrei tækifærið hjá Chelsea. Hann var lánaður til sex mismunandi félaga, en hann var síðast á láni hjá Burnley á þessu tímabili. Þar kom hann sex sinnum inn af bekknum.

Hann fer frá Chelsea án þess að hafa leikið leik fyrir aðalliðið. Hann er annar leikmaðurinn sem Aitor Karanka, stjóri Middlesbrough, fær í þessum glugga á eftir Rudy Gestede, sem kom frá Aston Villa.

Heimild: Sky Sports

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.