Fotbolti.net
18.01.17 - 21:22
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Daði Bergsson í Þrótt R. (Staðfest)

Daði Bergsson er genginn til liðs við Þrótt R.

Daði Bergsson er genginn til liðs við Þrótt R.

Canon

Mynd: Þróttur R.

Kantmaðurinn Daði Bergsson hefur undirritað tveggja ára samning við uppeldisfélag sitt, Þrótt í Reykjavík. Þetta var staðfest á heimasíðu félagsins í kvöld.

Daði er fæddur árið 1995 en hann lék með Þrótti í yngri flokkunum. Eftir dvöl hjá NEC Nijmegen í Hollandi kom Daði til Vals sumarið 2015.
Síðan þá hefur Daði skorað fimm mörk í 23 deildar og bikarleikjum með Val. Hann var einnig á láni hjá Leikni R. síðari hluta sumars 2015.

Fyrr í þessari viku bárust fréttir af því að Valur hefði samþykkt tilboð í Daða frá Víkingi R, en uppeldisfélagið hafði betur í baráttunni um hann.

„Það er hrikalega gaman að vera kominn aftur heim í Þrótt og ég hlakka til að taka slaginn með nýjum og gömlum félögum. Ég er spenntur fyrir umgjörðinni í Laugardal, líst vel á stefnu klúbbsins og er fullur eftirvæntingar að taka þátt í þessu verkefni,\" sagði Daði eftir að hafa skrifað undir.

Gregg Ryder, þjálfari Þróttara, er ánægður með viðbótina.

„Daði er leikmaður sem hefur þrátt fyrir ungan aldur lengi verið meðal þeirra efnilegustu í landinu. Hann snýr nú aftur í Þrótt og mun fá tækifæri til að upplifa þá tilfinningu að vera frá upphafi álitinn lykilmaður í sterkum hópi,\" sagði Gregg um sinn nýjasta leikmann.

Þróttur R. féll úr Pepsi-deildinni á síðasta tímabili, en þeir hafa þó verið mjög duglegir að styrkja sig. Auk Daða hafa Grétar Sigfinnur Sigurðarson, Hlynur Hauksson, Rafn Andri Haraldsson og Viktor Jónsson ákveðið að taka slaginn með liðinu í Inkasso-deildinni næsta sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.