Fotbolti.net
18.01.17 - 12:00
Magnús Már Einarsson

FH semur við bandarískan markvörð (Staðfest)

Lindsey Harris hefur samið við FH.

Lindsey Harris hefur samið við FH.

Canon

Mynd: FH

Kvennaboltinn
FH hefur samið við markvörðinn Lindsey Harris en hún mun spila með liðinu í Pepsi-deild kvenna í sumar.

Lindsey á að fylla skarð Jeannette J Williams sem verður ekki áfram hjá FH. Jeannette var einn besti markvörðurinn í Pepsi-deild kvenna í fyrra og því bíður Lindsey verðugt verkefni að koma inn í stað hennar.
Lindsey er fædd árið 1993 og kemur beint úr háskólaboltanum í Bandaríkjunum, en undanfarin þrjú ár hefur hún spilað með University of North Carolina (UNC), sem er með eitt af sterkustu liðunum í bandaríska háskólafótboltanum. Að auki hefur Lindsey æft með U23 ára liði Bandríkjanna.

FH liðið endaði síðast tímabil í 6. sæti Pepsídeildarinnar eftir að hafa komið upp úr 1. deildinni árið áður. Árni Rúnar Þorvaldsson, formaður kvennaráð FH segir að það hafi verið vilji FH að fá Jeanette aftur til liðs við félagið en það hafi ekki gengið upp að þessu sinni.

„Við vildum endilega fá Jeanette aftur en það gekk því miður ekki upp núna en við erum afskaplega ánægð með að vera búin að tryggja okkur Lindsey Harris. Við trúum því að hún muni nýtast liðinu afskaplega vel á næstu leiktíð og hún fær bestu meðmæli allra sem hafa starfað með henn“, segir Árni Rúnar.

Á síðasta tímabili náði FH 6. sætinu eftir að hafa komið upp úr 1. deildinni árið áður. Árni segir að FH vilji byggja ofan á þennan árangur á næsta tímabili og stefnan er að halda áfram að styrkja liðið fyrir næsta tímabil. „Já, við fengum til liðs við okkur kantmann um daginn frá Bandaríkjunum og nú höfum við náð í markmann. Það er markmið okkar að styrkja liðið með 1-2 sterkum leikmönnum í viðbót fyrir komandi keppnistímabil. Það kemur bæði til greina að leita eftir leikmönnum innanlands og erlendis“, segir Árni Rúnar Þorvaldsson, formaður kvennaráðs FH.
Jeannette J Williams verður ekki áfram hjá FH.

Jeannette J Williams verður ekki áfram hjá FH.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.