18.01.17 - 17:11
Elvar Geir Magnússon
Huginn fær Bergstein í markið (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Huginn frá Seyðisfirði, sem féll úr Inkasso-deildinni síðasta sumar, hefur fengið Bergstein Magnússon markvörð í sínar raðir.
Bergsteinn er á 23. aldursári og kemur frá Aftureldingu þar sem hann lék 15 leiki í 2. deildinni á síðasta tímabili.

Bergsteinn lék sína fyrstu deildarleiki í meistaraflokki 2013 þegar hann spilaði þrjá leiki með Keflavík í Pepsi-deildinni.
Síðan þá hefur hann leikið með Selfossi og Leikni Fáskrúðsfirði.
Atli Gunnar Guðmundsson sem lék í marki Hugins í fyrra gekk í raðir Fram í haust.