Fotbolti.net
18.01.17 - 13:00
Magnús Már Einarsson

Íslenskur varnarmaður í sænsku B-deildina (Staðfest)

Íslenskur varnarmaður í sænsku B-deildina (Staðfest)
Canon

Mynd: Frej

Íslenski varnarmaðurinn Nói Snæhólm Ólafsson hefur samið við Frej sem leikur í Superattan eða næstefstu deild í Svíþjóð.
Hinn 23 ára gamli Nói lék með KR í yngri flokkunum en hann lék síðast í Vesturbænum þegar hann var á yngsta ári í 2. flokki árið 2011.

Undanfarin ár hefur Nói spilað í Svíþjóð en á síðasta tímabili var hann á mála hjá BKV Norrtälje sem endaði í fjórða sæti í sínum riðli í D-deildinni.

Í desember fór Nói til Frej á reynslu og í kjölfarið var honum boðinn samningur hjá félaginu.

„Ég er mjög ánægður með að fá tækifærið hjá Frej. Þetta er félag sem ég hef heyrt marga jákvæða hluti um,\" sagði Nói á heimasíðu Frej.

Frej endaði í tíunda sæti af sextán liðum í sænsku B-deildinni á síðasta tímabili.

Hér að neðan má sjá myndbönd úr leikjum með Nóa á síðasta tímabili.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.