Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 18. janúar 2020 14:41
Ívan Guðjón Baldursson
Björn Bergmann hefur tíma til þriðjudags
Mynd: Getty Images
Björn Bergmann Sigurðarson hefur tíma til þriðjudags til að ganga í raðir kýpversku meistaranna í APOEL FC sem leita annars að öðrum sóknarmanni.

Björn Bergmann stóðst læknisskoðun og eru samningsviðræður búnar en framherjinn þarf að skjótast til Rússlands áður en skiptin geta gengið í gegn.

Þar þarf hann að funda með félagi sínu, Rostov, vegna peningavandræða milli hans og félagsins. Ef allt gengur vel ætti Björn að snúa aftur til Kýpur strax eftir helgi og ganga frá öllu þar.

APOEL er í fjórða sæti kýpversku deildarinnar sem stendur, átta stigum frá toppnum.

Sjá einnig:
Björn Bergmann gæti yfirgefið Rostov
Björn Bergmann á leið til APOEL í Kýpur
Björn Bergmann í læknisskoðun hjá APOEL
Rostov og APOEL enn í viðræðum um Björn Bergmann
Athugasemdir
banner
banner