Fotbolti.net
18.01.20 - 17:25
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Fótbolta.net mótið: Albert Brynjar með tvö í sigri Kórdrengja

Albert Brynjar og Davíð Smári Lamude þjálfari Kórdrengja.

Albert Brynjar og Davíð Smári Lamude þjálfari Kórdrengja.

Canon

Mynd: Kórdrengir

<b>Kórdrengir 5 - 2 Augnablik</b>
Mörk Kórdrengja: Albert Brynjar Ingason 2, Páll Sindri Einarsson, Aron Skúli Brynjarsson og Magnús Óliver Axelsson.
Kórdrengir báru sigurorðið af Augnabliki þegar liðin áttust við í C-deild Fótbolta.net mótsins í dag. Leikurinn fór fram á Framvelli.

Albert Brynjar Ingason, sem gekk í raðir Kórdrengja eftir síðustu leiktíð, skoraði tvö mörk. Það verður fróðlegt að sjá hvernig honum vegnar í 2. deild næsta sumar.

Leikurinn endaði með 5-2 sigri Kórdrengja sem eru því með þrjú stig. Augnablik er án stiga. Árborg og Elliði eru í Riðli 2 ásamt Kórdrengjum og Augnabliki.

Árborg og Elliði munu eigast við næskomandi miðvikudag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.