Fotbolti.net
18.02.20 - 08:00
Aksentije Milisic
Ítalski boltinn

„Lautaro vill einungis spila fyrir Inter"

„Lautaro vill einungis spila fyrir Inter"
Canon

Mynd: Getty Images

Stjórnarformaður Inter, Beppe Marotta, segir að það sé ekkert til í þeim sögusögnum að framherji liðsins, Lautaro Martinez, sé að leiðinni til Barcelona.

Mikið hefur verið fjallað um áhuga Barcelona á þessum 22 ára gamla leikmanni sem hefur spilað frábærlega í vetur. Hann er aðal skotmark Börsunga næsta sumar en Marotta segir að hann fari ekki fet.
„Lautaro er ungur leikmaður sem er stöðugt að bæta sig. Hann hefur einungis áhuga á því að klæðast glæsilegri treyju Inter," sagði Marotta.

„Það er engin ástæða fyrir Inter að vera öfundsjúkt út í önnur lið. Leikmenn fá einungis að yfirgefa Inter ef þeir biðja um sölu."

Martinez kom til Inter árið 2018 frá Racing Club og hefur hann unnið sér inn sæti í landsliðinu með frammistöðu sinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.