18.02.22 - 01:44
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu Dagnýju skora fljótasta mark í sögu SheBelieves-mótsins

Dagný Brynjarsdóttir skoraði fljótasta mark sem hefur verið skorað í SheBelieves-mótinu

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Dagný Brynjarsdóttir skoraði fljótasta mark sem hefur verið skorað í SheBelieves-mótinu

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Íslenska kvennalandsliðið er komið yfir gegn Nýja-Sjálandi í SheBelieves-mótinu sem fer fram í Bandaríkjunum en það var Dagný Brynjarsdóttir sem gerði markið.
Smelltu hér til að lesa textalýsingu - Ísland 1 - 0 Nýja-Sjáland
Markið kom eftir um það bil 40 sekúndur. Íslenska liðið fékk hornspyrnu sem Karólína Lea Vilhjálmsdóttir tók. Erin Nayler, markvörður Nýja-Sjálands kýldi boltann, sem fór af Guðrúnu Arnarsdóttu og fyrir Dagnýju í markteignum sem kom honum í netið.
Þetta er fljótasta mark sem hefur verið skorað í SheBelieves-mótinu frá því það var sett á laggirnar árið 2016.
Markið má sjá hér fyrir neðan.

The scoring has begun!@footballiceland's Dagný Brynjarsdóttir scores the fastest goal in tournament history! 🇮🇸#SheBelieves x @Visa pic.twitter.com/7NDtPGFnqO
— U.S. Soccer WNT (@USWNT) February 18, 2022