Clément Bayiha er búinn að yfirgefa Þór á Akureyri eftir að hafa staðið sig vel með liðinu í fyrra.
Clément gengur til liðs við FC Supra sem er staðsett í Quebec og leikur í efstu deild í Kanada.
FC Supra, eða Supra du Quebec, er nýliði í 8-liða efstu deild kanadíska boltans.
Clément er 26 ára kantmaður og snýr aftur heim til Kanada með þessum félagaskiptum. Hann á leiki að baki fyrir CF Montréal í bandarísku MLS deildinni auk þess að hafa komið við hjá Ham-Kam í norska boltanum.
Hann býr yfir reynslu úr efstu deild í Kanada eftir að hafa leikið með York United (sem heitir í dag Inter Toronto) og HFX Wanderers.
Clément skoraði 4 mörk í 22 leikjum með Þór í deild og bikar í fyrra.
Athugasemdir




