Fotbolti.net
18.03.26 - 20:05
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Lewandowski setti þrjú met í sama leiknum

Lewandowski fagnar marki í kvöld.

Lewandowski fagnar marki í kvöld.

Canon

Mynd: EPA

Robert Lewandowski var í stuði þegar Barcelona fór illa með Newcastle í Meistaradeildinni í kvöld.

Pólski sóknarmaðurinn gerði tvö mörk í seinni hálfleiknum er Barcelona vann 7-2 sigur.
Lewandowski er einn besti sóknarmaður sögunnar en hann gerði sér lítið fyrir og setti þrjú met í þessum eina og sama leik.

Hann varð nefnilega elsti leikmaður sögunnar til að skora í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar, hann er 37 ára og 209 daga gamall. Hann varð jafnframt elsti leikmaðurinn til að skora tvisvar í Meistaradeildarleik og tók þar með fram úr Filippo Inzaghi.

Lewandowski hefur þá núna skorað gegn 41 mismunandi andstæðingum í Meistaradeildinni, meira en nokkur annar leikmaður.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.