Glódís Perla Viggósdóttir og stöllur hennar í Rosengård fögnuðu ljúfum 1-0 sigri á Linköpings á útivelli í sænsku deildinni í dag.
Sigurmark leiksins kom á fyrstu mínútu uppbótartíma en Rosengård var miklu öflugra liðið í dag og átti öll átta skotin sem fóru á mörkin tvö í dag.
Sigurmark leiksins kom á fyrstu mínútu uppbótartíma en Rosengård var miklu öflugra liðið í dag og átti öll átta skotin sem fóru á mörkin tvö í dag.
Glódís lék allan leikinn í hjarta varnarinnar. Liðið er með þrjú stig líkt og Häcken, Vittsjö og Djurgarden eftir fyrstu umferðina.
Í skosku úrvalsdeildinni var Arna Sif Ásgrímsdóttir á varamannabekknum þegar Glasgow vann 8-0 sigur á Motherwell. Glasgow er með sigrinum komið í toppsæti deildarinnar, með fleiri skoruð mörk en Rangers í 2. sætinu. Ode Fulutudilu skoraði þrennu fyrir Glasgow í leiknum.
Athugasemdir