Erling Braut Haaland gerði tvennu í dag þegar Dortmund vann 4-1 sigur á Werder Bremen í þýsku úrvalsdeildinni.
Haaland hafði ekki skorað í undanförnum leikjum með Dortmund og norska landsliðinu og því var það kærkomið fyrir þennan stæðilega framherja að setja tvennu í dag.
Haaland var tekinn í viðtal eftir leikinn og þar var hann spurður að því hvernig honum leið í þennan stutta tíma á meðan hann skoraði ekki marki.
„Já...það var auðvitað skítt," sagði Haaland sem er oft ekkert að flækja svörin voðalega mikið í viðtölum.
Dortmund datt úr keppni gegn Manchester City í Meistaradeild Evrópu í síðustu viku en sigurinn í dag í deildarkeppninni var kærkominn fyrir baráttuna um topp fjóra sem framundan er.
Athugasemdir