Liverpool og Man Utd berjast um miðjumann - Klopp tekur ekki við Real Madrid - Bayern hefur áhuga á Gordon
banner
   lau 18. apríl 2026 18:44
Brynjar Ingi Erluson
England: Brighton „stal“ tveimur stigum af Tottenham
Georginio Rutter skorar jöfnunarmarkið
Georginio Rutter skorar jöfnunarmarkið
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Tottenham 2 - 2 Brighton
1-0 Pedro Porro ('39 )
1-1 Kaoru Mitoma ('45 )
2-1 Xavi Simons ('77 )
2-2 Georginio Rutter ('90 )

Tottenham er áfram í leit að fyrsta sigri ársins eftir að hafa gert grimmt og svekkjandi 2-2 jafntefli gegn Brighton í 33. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í Lundúnum í dag.

Það hefur gengið illa hjá Tottenham að ná í úrslit og kom síðasti deildarsigur liðsins gegn Crystal Palace í lok desember.

Síðan þá hefur félagið rekið tvo þjálfara, þá Thomas Frank og Igor Tudor. Roberto De Zerbi var nálægt fyrsta sigrinum í kvöld.

Dómarinn tók mark af Richarlison á 17. mínútu vegna rangstöðu en liðið skoraði löglegt mark 22 mínútum síðar er Xavi Simons átti frábæran bolta yfir vörnina og á Pedro Porro sem skallaði boltann yfir Bart Verbruggen í markinu.

Laglegt mark hjá Porro en forystan varði ekki lengi því undir lok hálfleiksins jafnaði Kaoru Mitoma með algerlega sturluðu marki eftir langan bolta frá Pascal Gross. Mitoma fékk boltann vinstra megin og hamraði honum viðstöðulaust upp í þaknetið. Óverjandi fyrir Antonin Kinsky í markinu.

Staðan jöfn í hálfleik og byrjaði seinni hálfleikurinn fremur rólega, en það fór að lifna yfir honum.

Xavi SImons kom Tottenham yfir á 77. mínútu eftir frábæra pressu heimamanna. Lucas Bergvall vann boltann ofarlega, kom honum á Simons, sem leitaði að skoti og fann síðan augnablikið til að skjóta boltanum og smellhitti hann boltann sem fór í stöng og inn.

Tottenham var við það að ná mikilvægum fyrsta sigri ársins, en þá kom þungur hnífur á síðustu mínútum uppbótartímans. Jan Paul van Hecke fór illa með Kevin Danso í teignum, var mun sterkari og kom boltanum fyrir á Georginio Rutter sem bjargaði stigi fyrir Brighton.

Agalegt hjá Danso sem var niðurbrotinn í leikslok. Tottenham er áfram í fallsæti með 31 stig, einu stigi frá öruggu sæti þegar fimm umferðir eru eftir en Brighton í 9. sæti með 47 stig, einu stigi frá Evrópusæti.
Slapp
banner