Guardiola í árs frí og tekur svo við landsliði - Alonso vill sóknarmann Brentford - Bowen eftirsóttur
   lau 18. apríl 2026 20:56
Brynjar Ingi Erluson
England: Man Utd komið með annan fótinn í Meistaradeildina
Matheus Cunha gerði sigurmarkið á Stamford Bridge
Matheus Cunha gerði sigurmarkið á Stamford Bridge
Mynd: EPA
Chelsea 0 - 1 Manchester Utd
0-1 Matheus Cunha ('43 )

Manchester United er skrefi nær því að spila í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð eftir nauman 1-0 sigur á Chelsea á Stamford Bridge í kvöld.

United-liðið var ekkert sérstaklega sannfærandi í Lundúnum en það er ekki spurt að því í leikslok hvort liðið var betra heldur eru það mörkin sem telja og United þurfti bara eitt.

Chelsea var með yfirhöndina mest allan leikinn og líklegra til að skora, en United gerði eina markið gegn gangi leiksins á 43. mínútu er Bruno Fernandes fékk boltann hægra megin við teiginn, keyrði inn og sendi boltann á miðjan teiginn þar sem Matheus Cunha var mættur til að setja boltann í netið.

Wesley Fofana, varnarmaður Chelsea, var á því augnabliki fyrir utan völlinn að fá aðhlynningu og nýttu United-menn sér það til fulls.

Staðan í hálfleik 1-0 fyrir United og áfram héldu heimamenn að pressa á gestina í þeim síðari.

Chelsea-menn settu boltann tvisvar í þverslá. Fyrst á 57. mínútu frá Delap eftir fyrirgjöf Pedro Neto og svo aftur ellefu mínútum síðar en þá skallaði Fofana boltann í slá eftir aðra fyrirgjöf Neto.

Heimamenn náðu engan veginn að finna leið í gegnum vörn United sem hélt út.

Fjórða tapið í röð hjá Chelsea sem er áfram í 6. sæti með 58 stig á meðan United er í 3. sæti með 58 stig og gæti mögulega tryggt Meistaradeildarsætið í næstu umferð.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 37 25 7 5 69 26 +43 82
2 Man City 37 23 9 5 76 33 +43 78
3 Man Utd 37 19 11 7 66 50 +16 68
4 Aston Villa 37 18 8 11 54 48 +6 62
5 Liverpool 37 17 8 12 62 52 +10 59
6 Bournemouth 37 13 17 7 57 53 +4 56
7 Brighton 37 14 11 12 52 43 +9 53
8 Chelsea 37 14 10 13 57 50 +7 52
9 Brentford 37 14 10 13 54 51 +3 52
10 Sunderland 37 13 12 12 40 47 -7 51
11 Newcastle 37 14 7 16 53 53 0 49
12 Everton 37 13 10 14 47 49 -2 49
13 Fulham 37 14 7 16 45 51 -6 49
14 Leeds 37 11 14 12 49 53 -4 47
15 Crystal Palace 37 11 12 14 40 49 -9 45
16 Nott. Forest 37 11 10 16 47 50 -3 43
17 Tottenham 37 9 11 17 47 57 -10 38
18 West Ham 37 9 9 19 43 65 -22 36
19 Burnley 37 4 9 24 37 74 -37 21
20 Wolves 37 3 10 24 26 67 -41 19
Slapp
banner
banner