Arsenal er komið í baráttuna um Oscar Mingueza, varnarmann Celta Vigo á Spáni, en þetta herma heimildir enska miðilsins Telegraph.
Aston Villa, Newcastle United og West Ham voru sögð á eftir Mingueza í janúarglugganum og var Celta reiðubúið að selja hann þar sem hann átti þá aðeins sex mánuði eftir af samningi sínum við félagið.
Ekki tókst að ná samkomulagi um hinn 26 ára gamla Mingueza sem hélt kyrru fyrir og er því ljóst að hann fær að fara frítt þegar tímabilinu lýkur.
Telegraph segir Arsenal nú vera komið í myndina, en Mingueza getur bæði spilað sem miðvörður og bakvörður, og spilað 40 leiki á tímabilinu, skorað eitt mark og gefið sex stoðsendingar.
Aston Villa og Fulham eru einnig að fylgjast með stöðu Mingueza sem kemur úr hinni frægu La Masia-akademíu hjá Barcelona.

