Hallgrímur Mar Steingrímsson var ekki með KA í gær vegna meiðsla. Það er saga til næsta bæjar því Hallgrímur Mar er nánast alltaf til taks fyrir KA.
Frá því að Hallgrímur Mar sneri aftur í KA frá Víkingi fyrir tímabilið 2016 höfðu einungis erfið veikindi vorið 2024 haldið honum frá vellinum.
Fyrir leikinn í gær sagði Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, að meiðsli nafna síns væru ekki alvarleg.

Lestu um leikinn: KA 0 - 2 Víkingur R.
„Hann er aðeins aumur í mjöðminni, ég reikna með að hann verði klár í næsta leik," sagði þjálfarinn í viðtali við Árna Gísla Magnússon á SÝN Sport.
Fréttamaður Fótbolta.net ræddi við Hallgrím Mar á meðan leik stóð og hann bjóst við að vera klár í næsta eða þarnæsta leik liðsins.
„Vissulega er ekki verra fyrir okkur að hann sé ekki inn á. Hallgrímur er hrikalega góður leikmaður og er búinn að sýna það ár eftir ár í íslensku deildinni hversu megnugur hann er. En það skiptir okkur ekki máli hvort hann sé með eða ekki, við mætum með alveg eins hugarfar í hvern einasta leik," sagði Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, í viðtali fyrir leikinn.
Sölvi Geir sagði þá fyrir leik að Stígur Diljan Þórðarson væri að glíma við meiðsli og væri því ekki í hópnum. Viðtöl við þjálfarana eftir leikinn má sjá hér að neðan.