Það er stórleikur í úrvalsdeildinni á morgun þar sem Man City fær Arsenal í heimsókn.
Arsenal hefur verið í vandræðum að undanförnu og með sigri mun Man City minnka forskotið á toppnum niður í þrjú stig með leik til góða.
Mikel Arteta staðfesti að Bukayo Saka er ekki klár í slaginn. Þá eru Jurrien Timber, Martin Odegaard og Riccardo Calafiori allir tæpir en Mikel Merino er fjarverandi vegna meiðsla. Noni Madueke er tæpur og hinn 16 ára gamli Max Dowman gæti fengið tækifærið í byrjunarliðinu.
Ruben Dias, Josko Gvardiol og John Stones eru fjarverandi hjá Man City en það er líklegt að Pep Guardiola muni stilla upp sama liði og vann Chelsea 3-0 í síðustu umferð.

Man City: Donnarumma, Nunes, Khusanov, Guehi, O'Reilly, Rodri, Silva, Semenyo, Cherki, Doku, Haaland.
Arsenal: Raya, White, Saliba, Gabriel, Hincapie, Zubimendi, Rice, Trossard, Eze, Martinelli, Gyökeres.