Atlético Madríd og Real Sociedad mætast í úrslitum spænska konungsbikarsins á Estadio de la Cartuja-leikvanginum í Seville-borg klukkan 19:00 í dag.
Landsliðsfyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson er á mála hjá Real Sociedad og á möguleika á að vinna sinn fyrsta titil með spænska liðinu.
Bikarinn er ekki það eina sem Sociedad menn eru á eftir heldur mun sigurvegarinn einnig fá sæti í deildarkeppni Evrópudeildarinnar á næstu leiktíð.
Atlético Madríd mun ekki þurfa á því að halda enda er liðið nánast öruggt með Meistaradeildarsæti en Sociedad er í harðri baráttu um Evrópusæti í gegnum deildina og yrði því þungu fargi létt að sækja Evrópusætið í gegnum bikarinn.
Ef Atlético tekst hins vegar að vinna bikarinn og enda meðal fjögurra efstu í deildinni mun sjöunda sæti spænsku deildarinnar gefa sæti í Sambandsdeildina, en það er þó ekkert endilega öruggt að Sociedad verði þar enda mörg lið í kring að berjast um þessi sæti.
Atlético hefur tíu sinnum orðið bikarmeistari, síðast árið 2013, en Sociedad þrisvar sinnum.
Leikur dagsins:
19:00 Atletico Madrid - Real Sociedad


