Fotbolti.net
18.05.17 - 15:00
Magnús Már Einarsson

Arnór Snær aftur í ÍA (Staðfest)

Arnór Snær Guðmundsson.

Arnór Snær Guðmundsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

ÍA hefur kallað varnarmanninn Arnór Snæ Guðmundsson til baka úr láni frá Kára.

Arnór hefur undanfarin þrjú ár verið fastamaður í vörninni við hlið Ármanns Smára Björnssonar. Í ágúst í fyrra fór Arnór til Bandaríkjanna í skóla en vegna pappírsvandamála fékk hann ekki að spila í háskólaboltanum þar í vetur.
Arnór hóf því tímabilið á Íslandi á láni hjá Kára. Hann spilaði hálfleik gegn Vængjum Júpíters í 3. deildinni um síðustu helgi og í fyrrakvöld spilaði hann allan leikinn og skoraði í leik gegn Selfyssingum í Borgunarbikarnum.

Skagamenn hafa verið í basli með varnarleikinn í upphafi sumars en liðið hefur fengið þrettán mörk á sig í fyrstu fjórum leikjunum í deild og bikar.

Robert Menzel og Hafþór Pétursson byrjuðu í hjarta varnarinnar í fyrstu þremur leiki liðsins í Pepsi-deildinni. Í gær spiluðu Robert og Gylfi Veigar Gylfason saman í miðverði í 4-3 sigrinum á Fram í Borgunarbikarnum.

ÍA hefur einnig kallað markvörðinn Guðmund Sigurbjörnsson til baka úr láni frá Kára. Næsti leikur ÍA er gegn Grindavík á mánudag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.