Fotbolti.net
18.05.18 - 20:09
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

3. deild: Arnar Sveinn skoraði í sigri KH

Arnar varð Íslandsmeistari með Val í fyrra.

Arnar varð Íslandsmeistari með Val í fyrra.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ægir 0 - 3 KH
0-1 Arnar Sveinn Geirsson (\'20)
0-2 Sjálfsmark (\'60)
0-3 Ingólfur Sigurðsson (\'67)
Vel mannað lið KH sigraði Ægi í eina leik kvöldsins í 3. deild karla.

KH hefur fengið sterka leikmenn til liðs við sig í vetur og ætlar Hlíðarendarliðið sér að vera í toppbaráttu í sumar eftir að hafa komið upp úr 4. deildinni í fyrra.

Einn af leikmönnunum sem liðið hefur fengið er Arnar Sveinn Geirsson sem spilaði nokkuð stórt hlutverk í Íslandsmeistaralið Vals í fyrra. Arnar var ekki lengi að láta til sín taka í kvöld, hann kom liðinu 1-0 yfir eftir 20 mínútna leik.

Sjá einnig:
Arnar Sveinn lánaður til KH (Staðfest)

KH komst í 2-0 á 60. mínútu og nokkrum mínútum síðar gerði Ingólfur Sigurðsson algjörlega út um leikinn. Lokatölur 3-0 og er KH með fullt hús stiga eftir tvo leiki.

Ægir er með þrjú stig eftir sigur gegn Vængjum Júpiters í fyrsta leik.
Ingólfur var líka á skotskónum.

Ingólfur var líka á skotskónum.

Canon

Mynd: Facebook-síða KH

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.