Fotbolti.net
18.05.18 - 14:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson

Enska uppgjörið - 2. sæti: Man Utd

David De Gea átti frábært tímabil.

David De Gea átti frábært tímabil.

Canon

Mynd: Getty Images

Lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar fór fram á sunnudaginn, í þessum lið, enska uppgjörið er farið yfir tímabilið hjá liðunum í ensku úrvalsdeildinni. Nú er komið að því að skoða hvað gerðist hjá Manchester United í vetur.
Manchester United byrjaði tímabilið á 4-0 sigri á West Ham á Old Trafford. Eftir 8. umferðir var liðið taplaust í 2. sæti tveimur stigum á eftir Manchester City en í 9. umferð kom fyrsti tapleikurinn en Huddersfield sigraði þá Rauðu djöflana, 2-1.

Þann 10. desember mættust Manchester United og Manchester City á Old Trafford en þá munaði átta stigum á liðinum, fyrir þennan leik var talað um að þetta væri síðasta tækifæri Rauðu djöflana til að gera atlögu að Englandsmeistaratitlinum. Manchester United tapaði Manchesterslagnum og nágrannar þeirra komnir með ellefu stiga forskot sem þeir létu aldrei af hendi.

Eftir þrjú jafntefli í síðustu þremur leikjum desember mánaðar datt Manchester United niður í þriðja sætið og Chelsea fór í annað sætið. En á nýársdag var Manchester United komið aftur í annað sætið og þar voru þeir enn þegar ensku úrvalsdeildinni lauk á sunnudaginn.

Þetta er besti árangur Manchester United frá því að Sir Alex Ferguson var með liðið en hann stýrði liðinu til Englandsmeistaratitils árið 2013.

Besti leikmaður Manchester United á tímabilinu: Engin spurning hver fær þennan titil hjá Manchester United, David De Gea hefur sannað það og sýnt á þessu tímabili að hann er einn sá besti í sinni stöðu í heiminum.

Þessir sáu um að skora mörkin
Romelu Lukaku - 16 mörk
Anthony Martial - 9 mörk
Jesse Lingard - 8 mörk
Marcus Rashford - 7 mörk
Paul Pogba - 6 mörk
Marouane Fellaini - 4 mörk
Chris Smalling - 4 mörk
Juan Mata - 3 mörk
Antonio Valencia - 3 mörk
Alexis Sanchez - 2 mörk
Ashley Young - 2 mörk
Eric Bailly - 1 mark
Nemanja Matic - 1 mark
Henrikh Mkhitaryan (Spilar nú með Arsenal) - 1 mark

Þessir lögðu upp mörkin:
Paul Pogba - 10 stoðsendingar
Romelu Lukaku - 7 stoðsendingar
Jesse Lingard - 5 stoðsendingar
Anthony Martial - 5 stoðsendingar
Henrikh Mkhitaryan (Spilar nú með Arsenal) - 5 stoðsendingar
Marcus Rashford - 5 stoðsendingar
Juan Mata - 5 stoðsendingar
Ashley Young - 4 stoðsendingar
Alexis Sanchez - 3 stoðsendingar
Ander Herrera - 2 stoðsendingar
Nemanja Matic - 1 stoðsending
Antonio Valencia - 1 stoðsending

Flestir spilaðir leikir:
David De Gea - 37 leikir
Nemanja Matic - 36 leikir
Marcus Rashford - 35 leikir
Romelu Lukaku - 34 leikir
Jesse Lingard - 33 leikir
Antonio Valencia - 31 leikur
Anthony Martial - 30 leikir
Ashley Young - 30 leikir
Chris Smalling - 29 leikir
Juan Mata - 28 leikir
Paul Pogba - 27 leikir
Ander Herrera - 26 leikir
Phil Jones - 23 leikir
Victor Lindelof - 17 leikir
Marouane Fellaini - 16 leikir
Henrikh Mkhitaryan (Spilar nú með Arsenal) - 15 leikir
Eric Bailly - 13 leikir
Scott McTominay - 13 leikir
Alexis Sanchez - 12 leikir
Luke Shaw - 11 leikir
Marcos Rojo - 9 leikir
Matteo Darmian - 8 leikir
Daley Blind - 7 leikir
Zlatan Ibrahimovic - 5 leikir
Michael Carrick - 2 leikir
Sergio Romero - 1 leikur
Axel Tuanzebe - 1 leikur

Hvernig stóð vörnin í vetur?
Manchester United var með næst bestu vörnina í vetur en þeir fengu á sig einu marki meira en Manchester City. Man Utd fékk á sig 28 mörk sem eru einu marki minna en á síðasta tímabili.

Hvaða leikmaður skoraði hæst í Fantasy Premier leauge í vetur? David De Gea var stigahæsti leikmaður Manchester United í Fantasy leiknum á tímabilinu, hann fékk 172 stig.

Hvernig spáði Fótbolti.net fyrir um gengi Manchester United fyrir tímabilið?
Fótbolti.net spáði hárrétt fyrir um gengi Manchester United á tímabilinu, 2. sætið var niðurstaðan.

Spáin fyrir enska - 2. sæti: Man Utd

Fréttayfirlit: Hvað gerðist hjá Manchester United á tímabilinu
England: Lukaku með tvö mörk og United byrjar með látum
England: Fyrsta tap Man Utd kom gegn Huddersfield
England: City vann slaginn um Manchester - Ellefu stiga forysta
Sanchez til Man Utd - Mkhitaryan til Arsenal (Staðfest)
Zlatan kvaddi liðsfélaga sína hjá Man Utd
Pogba tjáir sig: Engin vandamál á milli mín og Mourinho
England: Mögnuð endurkoma United frestaði fögnuði City

Enska uppgjörið:
1.
2.
3. Tottenham
4. Liverpool
5. Chelsea
6. Arsenal
7. Burnley
8. Everton
9. Leicester
10. Newcastle
11. Crystal Palace
12. Bournemouth
13. West Ham
14. Watford
15. Brighton
16. Huddersfield
17. Southampton
18. Swansea
19. Stoke
20. West Brom
Mourinho stýrði Man Utd í annað sætið.

Mourinho stýrði Man Utd í annað sætið.

Canon

Mynd: Getty Images

Romelu Lukaku var markahæstur.

Romelu Lukaku var markahæstur.

Canon

Mynd: Getty Images

Paul Pogba lagði upp flest mörkin.

Paul Pogba lagði upp flest mörkin.

Canon

Mynd: Getty Images

Alexis Sanchez kom til Manchester United í janúar, hann skoraði tvö og lagði upp þrjú.

Alexis Sanchez kom til Manchester United í janúar, hann skoraði tvö og lagði upp þrjú.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.