Fotbolti.net
18.05.18 - 15:25
Magnús Már Einarsson

Lambert heldur ekki áfram með Stoke (Staðfest)

Ballið er búið.

Ballið er búið.

Canon

Mynd: Getty Images

Paul Lambert verður ekki áfram stjóri Stoke en félagið staðfesti þetta í dag.

Lambert tók við liðinu af Mark Hughes fyrir fjórum mánuðum en náði ekki að forða Stoke frá falli.

Stoke vann einungis tvo leiki af 15 undir stjórn Lambert.

<i>„Þó að hann hafi ekki náð að bjarga okkur þá vantaði ekki upp á viljann, fagmennskuna og ástríðuna,\"</I> sagði Stoke um Lambert í yfirlýsingu sinni.
Stoke ætlar að reyna að ráða nýjan stjóra eins fljótt og hægt er fyrir átökin í Championship deildinni næsta vetur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.