Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 18. maí 2019 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fjórir leikmenn í Álafoss (Staðfest)
Mynd: Álafoss
Álafoss styrkti sig fyrir lok gluggans með fjórum leikmönnum.

Þeir Adam Sigurðsson, Aron Elfar Jónsson, Davíð Þorleifsson og Guðjón Ingi Ingólfsson Bachmann skiptu allir yfir í Álafoss fyrir gluggalok.

Adam Sigurðsson er fæddur árið 1996 og skiptir yfir frá Keflavík. Aron Elfar Jónsson skiptir aftur yfir frá Kormáki/Hvöt en hann lék áður með Álafossi.

Davíð Þorleifsson hefur verið viðloðin lið Mídasar og Guðjón Ingi kom frá Álftanesi. Guðjón Ingi spilaði fyrsta leik tímabilsins þegar Álftanes tapaði gegn Hamri.

Álftanes leikur í C-riðli 4. deildar og næsti leikur liðsins er þriðjudaginn 21. maí gegn GG.
Athugasemdir
banner