Fotbolti.net
18.06.17 - 07:30
Elvar Geir Magnússon

Meite sá þriðji sem Mónakó keypti á tveimur dögum (Staðfest)

Mónakó er ríkjandi Frakklandsmeistari.

Mónakó er ríkjandi Frakklandsmeistari.

Canon

Mynd: Getty Images

Frakklandsmeistarar Mónakó tilkynntu í gær um kaup á miðjumanninum Soualho Meite frá Lille.

Hann var þriðji leikmaðurinn sem félagið <a href=\"http://fotbolti.net/news/16-06-2017/monako-buid-ad-kaupa-tvo-leikmenn-i-dag\" target=\"_blank\">keypti á tveimur dögum</a>.
Meite er 23 ára og var á láni hjá Zulte Waregem í Belgíu á síðasta tímabili. Hann hefur samþykkt fimm ára samning.

Meite varð bikarmeistari með Zulte Waregem á síðasta tímabili.

„Það er heiður að skrifa undir hjá þessu frábæra félagi. Það eru mjög góðar vinnuaðstæður hér. Ég fylgdist með liðinu á síðasta tímabili, það hefur góða heild, mikla tækni og hraða,\" sagði Meite við heimasíðu Mónakó.

🖊 L’AS Monaco est heureux d’annoncer la signature de Soualiho Meïté jusqu’en 2022 ! #WelcomeToMonaco pic.twitter.com/to2a6xSQ5r

— AS Monaco🏆🇫🇷 (@AS_Monaco) June 17, 2017

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.