Holland mun fylgja Dönum í 8-liða úrslit Evrópumóts U21 árs landsliða, en þetta varð ljóst eftir úrslit dagsins.
Danir voru þegar búnir að tryggja sæti sitt fyrir lokaumferðina og var því aðeins spurning hvaða þjóð myndi fylgja þeim.
Hollendingar tóku það sæti með því að vinna Úkraínu, 2-0. Luciano Valente og Thom Van Bergen skoruðu mörkin. Valente skoraði annað mark sitt í mótinu á meðan Van Bergen var að gera sitt fyrsta mark.
Sigurinn kom Hollendingum í annað sætið og er ljóst að liðið mun mæta Portúgal í 8-liða úrslitunum.
Danmörk og Finnland gerðu 2-2 jafntefli. Conrad Harder, leikmaður Sporting Lisbon, kom Dönum í tveggja marka forystu, en Finnar náðu að koma til baka með mörkum frá Naatan Skytta og Topi Eskinen á síðustu tuttugu mínútunum.
Ágætis árangur hjá Finnum sem náðu í stig gegn tveimur efstu liðum riðilsins.
Danir mæta öflugu liði Frakklands í 8-liða úrslitunum.
Danmörk 2 - 2 Finnland
1-0 Conrad Harder ('10 )
2-0 Conrad Harder ('68 )
2-1 Naatan Skytta ('73 )
2-2 Topi Keskinen ('82 )
Holland 2 - 0 Úkraína
1-0 Luciano Valente ('34 )
2-0 Thom Van Bergen ('57 )
Rautt spjald: Youri Regeer, Holland ('81)
Athugasemdir