
Stjarnan 4 - 2 Keflavík
0-1 Eiður Orri Ragnarsson ('15 )
1-1 Emil Atlason ('26 )
1-2 Ásgeir Páll Magnússon ('31 )
2-2 Jóhann Árni Gunnarsson ('34 )
3-2 Benedikt V. Warén ('43 )
4-2 Örvar Logi Örvarsson ('48 )
Lestu um leikinn
0-1 Eiður Orri Ragnarsson ('15 )
1-1 Emil Atlason ('26 )
1-2 Ásgeir Páll Magnússon ('31 )
2-2 Jóhann Árni Gunnarsson ('34 )
3-2 Benedikt V. Warén ('43 )
4-2 Örvar Logi Örvarsson ('48 )
Lestu um leikinn
Stjarnan er komin í undanúrslit Mjólkurbikarsins annað árið í röð eftir að hafa unnið 4-2 sigur á Keflavík á Samsung-vellinum í Garðabæ í kvöld.
Stjörnumenn voru með öll völd á leiknum fyrsta stundarfjórðunginn og sköpuðu sér hvert dauðafærið á fætur öðru og ekkert sem benti til þess að Keflavík myndi sýna mótstöðu.
Það var því algerlega gegni gangi leiksins þegar Eiður Orri Ragnarsson kom Keflvíkingum í forystu á 15. mínútu. Kári Sigfússon fékk boltann á vinstri kantinum og kom boltanum inn á teiginn á Eið Orra, sem stakk sér fram fyrir Örvar og potaði boltanum í netið.
Keflvíkingar fundu aðeins taktinn eftir markið en þá kom jöfnunarmark frá heimamönnum. Benedikt Warén sótti aukaspyrnu rétt fyrir utan teig og þrumaði Emil Atlason spyrnunni í bláhornið. Óverjandi fyrir Sindra í markinu.
Mörkin héldu áfram að koma og voru það gestirnir sem komu sér aftur í forystu. Keflvíkingar fengu hornspyrnu sem fékk að skoppa inn í teignum og á Ásgeir Pál Magnússon sem stangaði boltann í netið af þriggja metra færi.
Jóhann Árni Gunnarsson jafnaði þremur mínútum síðar eftir frábæra pressu. Alex Þór Hauksson tók boltann af Stefáni Jóni Friðrikssyni og kom boltanum á Emil sem lagði hann fyrir Jóhann Árni og eftirleikurinn auðveldur.
Keflvíkingar voru ekki langt frá því að taka forystuna í þriðja sinn í leiknum er Kári átti viðstöðulaust skot af stuttu færi en Árni Snær Ólafsson var vandanum vaxinn í markinu og bjargaði í horn.
Stjörnumenn refsuðu fyrir það áður en hálfleikurinn var úti. Örvar Logi og Benedikt Warén áttu skemmtilegt samspil áður en Örvar kom boltanum inn á teiginn á Benedikt sem var mættur til að klára færið.
Stórskemmtilegur fyrri hálfleikur og tóku Stjörnumenn þráðinn þar sem frá var horfið í þeim síðari er Örvar Logi bætti við fjórða markinu þegar aðeins tæpar þrjár mínútur voru liðnar.
Slök hornspyrna fékk að skoppa út í teiginn og á Örvar sem hamraði boltanum í netið.
Heimamenn voru næstum því búnir að koma sér í þriggja marka forystu þegar rúmar tuttugu mínútur voru til leiksloka. Andri Rúnar Bjarnason og Guðmundur Baldvin Nökkvason spiluðu sín á milli á kantinum áður en Andri fékk boltann í teignum, náði að snúa sér, en skotið í varnarmann og beint á Sindra í markinu.
Haraldur Freyr Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur, gerði þrefalda skiptingu stuttu síðar og komu varamennirnir öflugir inn í leikinn og hættan orðin meiri í sóknarleik liðsins.
Keflavík náði þó ekki að saxa á forystu Stjörnumanna sem eru komnir í undanúrslit bikarsins annað árið í röð, en Keflvíkingar úr leik.
Athugasemdir