Rob Edwards að taka við Middlesbrough

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Sky Sports greinir frá því að allt útlit sé fyrir að Rob Edwards sé að taka við stjórnartaumunum hjá Middlesbrough.
Markmið félagsins er að komast aftur upp í ensku úrvalsdeildina en liðið hefur verið fast í Championship deildinni síðan 2017.
Edwards er 42 ára gamall og gerði garðinn frægan við stjórnvölinn hjá Luton Town sem hann kom upp í ensku úrvalsdeildina. Hann féll aftur niður með Luton og var rekinn eftir slakt gengi í Championship deildinni. Hann hefur því verið atvinnulaus síðan í janúar.
Middlesbrough endaði í tíunda sæti Championship deildarinnar undir stjórn Michael Carrick á síðustu leiktíð.
Stjórnendur félagsins skoðuðu einnig að ráða Steve Cooper og Danny Röhl sem aðalþjálfara en virðast hafa ákveðið að gefa Edwards starfið.