Fotbolti.net
18.07.16 - 14:30
Magnús Már Einarsson

Ari Freyr til Lokeren (Staðfest)

Ari Freyr Skúlason.

Ari Freyr Skúlason.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Belgíska félagið Lokeren hefur keypt Ara Frey Skúlason í sínar raðir frá OB í Danmörku.

Ari Freyr skrifaði undir þriggja ára samning við Lokeren í dag.

Hinn 29 ára gamli Ari á að fylla skarð Denis Odoi sem fór frá Lokeren til Fulham á dögunum.

Ara er ætlað að spila í vinstri bakverði hjá Lokeren en á tímabili hjá OB var hann að spila á miðjunni.
Ari spilaði allar mínútur Íslands á EM í Frakklandi og Lokeren hefur nú fest kaup á honum.

Landsliðsmaðurinn Sverrir Ingi Ingason er einnig á mála hjá Lokeren en hann og Ari spila saman í vörn liðsins á komandi tímabili.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.