Fotbolti.net
18.07.16 - 15:16
Magnús Már Einarsson

Berglind Björg í Breiðablik (Staðfest)

Berglind Björg í Breiðablik (Staðfest)
Canon

Mynd: Breiðablik

Kvennaboltinn
Breiðablik hefur fengið góðan liðsstyrk fyrir síðari hluta sumars í Pepsi-deild kvenna en sóknarmaðurinn Berglind Björg Þorvaldsdóttir er komin til félagsins frá Fylki.

Berglind fór frá Breiðabliki í Fylki eftir tímabilið 2014 en hún er nú mætt aftur á gamalkunnar slóðir.

Berglind, sem á 15 landsleiki að baki, mun nú hjálpa Blikum í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn.

Erfitt gæti orðið fyrir Fylki að fylla skarð Berglindar en hún hefur skorað fjögur af sjö mörkum liðsins í Pepsi-deildinni í sumar.
Fréttatilkynning frá Berglindi:
Það er okkur sönn ánægja að tilkynna að Fylkir og Breiðablik hafa komist að samkomulagi um félagsskipti Berglindar Bjargar Þorvaldsdóttur í Breiðablik. Berglind skrifaði undir 3 ára samning og mun taka þátt í harðri keppni okkar sem framundan er á öllum vígstöðvum, deild, bikar og Evrópu.

Það þarf ekki að fjölyrða um hversu mikill liðstyrkur er í Berglindi hún hefur spilað 140 leiki í efstu deild frá því að hún spilaði sinn fyrsta leik með okkur Blikum árið 2007 þá aðeins 15 ára gömul og í þeim hefur hún skorað 82 mörk.

Berglind á 15 A landsleiki og fjöldann allan af leikjum með yngri landsliðum. Breiðablik og Fylkir hafa átt gott samstarf í leikmannamálum á síðustu misserum og nokkrar ungar og efnilegir Blikastelpur hafa verið lánaðar til þeirra þar sem þær hafa stigið sín fyrstu skref í meistaraflokki. Það er ljóst að framhald verður á þeirri samvinnu á næstu árum.

Við viljum jafnframt þakka Fylki fyrir fagleg og heiðarleg vinnubrögð í tengslum við félagaskipti Berglindar.

Við bjóðum Berglindi velkomna heim og hlökkum til að sjá hana í græna búningnum að nýju á vellinum sem allra fyrst.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.