Fotbolti.net
18.07.16 - 21:00
Elvar Geir Magnússon

Swansea fær ástralskan markvörð (Staðfest)

Mark.

Mark.

Canon

Mynd: Getty Images

Gylfi Þór Sigurðsson hefur fengið nýjan liðsfélaga hjá Swansea en til félagsins er kominn 25 ára ástralskur markvörður, Mark Birighitti, sem kemur frá Newcastle Jets.

Birighitti gerði tveggja ára samning en hann á einn A-landsleik að baki.
Lukasz Fabianski verður væntanlega áfram aðalmarkvörður en Birighitti á að veita honum samkeppni ásamt þeim Kristoffer Nordfeldt og Gerhard Tremmel.

Birighitti segist meðvitaður um að vera að fara í harða samkeppni.

„Ég fylgdist með Evrópumótinu heima í Ástralíu og sá Lukasz eiga frábært mót fyrir pólska landsliðið. Hann var líklega einn besti markvörður mótsins. Ég ætla að mæta á hverja æfingu með það markmið að vera besti markvörður æfingarinnar,\" segir Birighitti..
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.