18.07.17 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Grétar Atli í KFG (Staðfest)

Grétar í leik með KFG í fyrra.

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Grétar í leik með KFG í fyrra.

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
KFG hefur fengið liðsstyrk fyrir síðari hluta sumars í 3. deildinni en Grétar Atli Grétarsson er kominn til félagsins.
Grétar Atli er uppalinn Stjörnumaður en hann hefur undanfarið árið búið í Svíþjóð.
Í fyrra lék Grétar Atli nokkra leiki með KFG í 4. deildinni og hann mun nú klára tímabilið með liðinu.

Grétar er fjölhæfur leikmaður en hann getur leyst stöður á miðjunni og í vörninni.
Á ferli sínum hefur meðal annars leikið með Stjörnunni og Keflavík í efstu deild ásamt Haukum og Þrótti í næst efstu deild.
KFG er í 5. sætinu í 3. deildinni eftir tíu umferðir en einungis tvö stig eru í annað sætið og þrjú í fyrsta.