18.07.18 - 15:25
Hafliði Breiðfjörð
Fabio til Nantes (Staðfest)

Fabio er farinn í frönsku deildina.

Mynd: Getty Images

Fabio er farinn í frönsku deildina.

Mynd: Getty Images
Varnarmaðurinn Fabio er genginn í raðir Nantes í Frakklandi frá Middlesbrough.
Brasilíumaðurinn er 28 ára gamall en flestir muna eftir honum frá Manchester United árunum en þangað kom hann frá heimalandinuárið 2008 og var í fimm og hálft ár áður en hann fór til QPR og Cardiff.
Hann gerir þriggja ára samning við franska félagið eftir að hafa verið hjá Middlesbrough í tvö tímabil, spilað 52 leiki og skorað 2 mörk.
„Ég er mjög ánægður með að hafa gengið til liðs við gott félag,\" sagði hann við þetta tilefni.

Heimild: BBC