Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 18. júlí 2019 20:50
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Evrópudeildin: Markalaust gegn Molde en KR er úr leik
KR-ingar fara ekki lengra í Evrópukeppninni í ár.
KR-ingar fara ekki lengra í Evrópukeppninni í ár.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KR 0 - 0 Molde (samanlagt 1-7)
Lestu nánar um leikinn

KR er úr leik í Evrópukeppni eftir markalaust jafntefli við topplið norsku úrvalsdeildarinnar á heimavelli sínum í kvöld. Það var fyrri leikurinn í Noregi sem gerði út af við þetta einvígi.

Molde vann fyrri leikinn 7-1 og var þetta því alltaf að fara að verða brekka fyrir KR-inga - mikil brekka.

KR-ingar gerðu fimm breytingar á byrjunarliði sínu og voru lykilmenn á borð við Óskar Örn Hauksson og Tobias Thomsen allan tímann á bekknum. Arnþór Ingi Kristinsson, sem hefur verið frábær í undanförnum leikjum, sat líka allan tímann á bekknum.

Þrátt fyrir að mikilvægir póstar hafi fengið hvíld voru KR-ingar alls ekki síðri aðilinn í kvöld og hefði toppliðið í Pepsi Max-deildinni með smá heppni getað stolið sigrinum.

Lokatölur urðu 0-0 og samanlagt 7-1 fyrir Molde, sem er á toppnum í Noregi. Molde mætir Cukaricki frá Serbíu í næstu umferð forkeppni Evrópudeildarinnar.

Það verða tvö íslensk lið í næstu umferð forkeppninnar. Stjarnan og Valur. KR og Breiðablik geta einbeitt sér að deild og bikar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner