Fotbolti.net
18.07.26 - 19:30
Ívan Guðjón Baldursson

Siggi Höskulds: Eini sénsinn til að sigra Víking

Auglýsing
Siggi Höskulds: Eini sénsinn til að sigra Víking
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sigurður Heiðar Höskuldsson var kátur eftir óvæntan sigur Þórs gegn Íslandsmeisturum Víkings R. í Bestu deildinni á Akureyri í dag.
Lestu um leikinn: Þór 2 - 1 Víkingur R.
Þetta er afar langþráður sigur fyrir nýliða Þórs sem voru án sigurs síðan í 3. umferð Íslandsmótsins sem var leikin í apríl.

„Við erum búnir að bíða lengi eftir þessu og þetta er stórkostlegur dagur til að fá loksins sigur. Við fengum mikinn ferskleika með tvo nýja leikmenn, við þurftum á liðsstyrk að halda og þeir gáfu okkur allt sem við þurftum í dag. Við vissum að ef við fengum einhvern tímann séns til að vinna Víking þá yrði það í dag. Þegar ég vaknaði í morgun leið mér eins og við værum að fara að vinna þennan leik," sagði Siggi Höskulds að leikslokum, enda er Víkingur með ógnarsterkt lið og var að hvíla lykilmenn á Akureyri eftir mikil átök í forkeppni Meistaradeildarinnar á dögunum.

Siggi hrósaði Gyrði Hrafni Guðbrandssyni í hástert að leikslokum sem og Eiði Benedikt Eiríkssyni sem þjálfar föstu leikatriðin hjá Þór.

„Við munum fá tvo til þrjá leikmenn inn í viðbót, við þurfum að styrkja okkur fram á við. Við sýndum yfirburði fyrstu 25 mínúturnar í dag en nýttum það ekki. Við verðum að láta þessa kafla í leikjum skipta meira máli, við verðum að fá fleiri skot á mark og búa til fleiri og betri færi. Þetta verður að skila meiru."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.