Chelsea hafnaði tveimur tilboðum frá Como

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Ítalska félagið Como er að reyna að kaupa varnarmanninn fjölhæfa Trevoh Chalobah úr röðum Chelsea.

TENGT EFNI
Chalobah kallaður inn í enska landsliðið vegna meiðsla
Chalobah er 27 ára gamall og spilaði 47 leiki á síðustu leiktíð. Chelsea er aðeins tilbúið að selja hann fyrir rétta upphæð og hefur hafnað tveimur tilboðum frá Como á síðustu dögum.
Inter sýndi varnarmanninum einnig áhuga en virðist vera búið að draga sig úr kapphlaupinu. Chalobah er með tvö ár eftir af samningi sínum við Chelsea, en félagið getur framlengt um auka ár.
Chalobah á í heildina 151 leik að baki fyrir Chelsea og var algjör lykilmaður upp yngri landslið Englands, með 58 leiki að baki. Það hefur þó tekið langan tíma að taka stökkið upp í A-landsliðið, þar sem hann lék sinn fyrsta landsleik í fyrra og var valinn í enska landsliðshópinn fyrir heimsmeistaramótið þar sem hann fyllti í skarðið fyrir meiddan Tino Livramento.
Talið er að Chelsea sé reiðubúið til að selja Chalobah fyrir um 40 milljónir evra, sem samsvara 34 milljónum punda.

Como býður 23 milljónir punda í enska landsliðsmanninn

Mynd: EPA