Fotbolti.net
18.07.26 - 21:52
Ívan Guðjón Baldursson

Fjórum mörkum yfir í hálfleik

Fjórum mörkum yfir í hálfleik
Canon

Mynd: EPA

Fyrri hálfleik er lokið í bronsleiknum á heimsmeistaramótinu og er staðan 4-0 fyrir Englandi eftir rosalega fjörugan fyrri hálfleik.
Kylian Mbappé hefur verið langlíflegasti maður Frakka en liðsfélagar hans virðast ekki nenna að spila þennan leik. Þeir hafa gert Englendingum auðvelt fyrir og geta búist við þrumuræðu frá Didier Deschamps í leikhlé, en þetta er kveðjuleikur hans við stjórnvölinn áður en Zinedine Zidane tekur við síðar í mánuðinum.

Declan Rice skoraði fyrsta mark leiksins eftir hörmulegan varnarleik Frakka og lagði annað upp úr hornspyrnu sem einn og óvaldaður Ezri Konsa skallaði í netið. Bukayo Saka setti svo þriðja markið eftir skyndisókn með Marcus Rashford og skoraði hann aftur í uppbótartímanum eftir skelfilegan varnarleik. Í þetta skiptið labbaði Saka í gegn eftir sendingu frá Eberechi Eze, liðsfélaga sínum hjá Arsenal.

Sjáðu markið

Sjáðu mörkin: Englendingar þremur yfir
TENGT EFNI

Sjáðu mörkin: Englendingar þremur yfir

Fjórum mörkum yfir í hálfleik
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.