Fotbolti.net
18.07.26 - 13:07
Brynjar Ingi Erluson

Trump heillaður af Messi – „Sjaldgæft að menn skori þrennu“

Lionel Messi

Lionel Messi

Canon

Mynd: EPA

Lionel Messi, leikmaður argentínska landsliðsins, fékk veglegt hrós frá Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, er hann ávarpaði fjölmiðla í New York í nótt.
Trump er heillaður af Messi, sem er markahæsti leikmaður heimsmeistaramótsins.

Messi skoraði þrennu í fyrsta leik Argentínu gegn Alsír á mótinu, en Trump sagði slíkt afar sjaldgæft í fótbolta. Argentínumaðurinn hefur alls skorað 61 þrennu á ferlinum.

„Við sjáum hversu góður Messi er. Hann skoraði þrennu, sem er mjög sjaldgæft í íþróttinni ykkar,“ sagði Trump.

Hann ræddi einnig frammistöðu Messi gegn Englandi, en hann lagði upp bæði mörk Argentínu í leiknum. Trump var sérstaklega hrifinn af seinni stoðsendingunni þegar Messi fann Lautaro Martinez, sem skoraði sigurmarkið.

„Ég horfði á sendinguna hjá Messi. Ég veit ekki jafn mikið og fólkið hér inni, en ég veit mikið um íþróttir og aðeins um fótbolta.“

„Margir leikmenn voru að gæta hans en allt í einu færði hann sig yfir til hægri. Vitið þið hvað ég er að tala um? Ég tók bara eftir þessu.“

„Enginn talaði um það. Ég hugsaði með mér að frábær leikmaður væri að gæta hans mjög vel, en þá færði Messi sig til hægri og hinn leikmaðurinn stóð bara kyrr.“

„Messi fékk nægan tíma, sendi boltann og þetta var aðeins nokkrum sentimetrum frá því að vera fullkomið. Svo lauk leiknum. Þetta var stórkostlegt,“ sagði Trump.
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, er heillaður af Messi

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, er heillaður af Messi

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.