Fotbolti.net
18.07.26 - 13:33
Brynjar Ingi Erluson

Brasilíumaðurinn með þrennu í fyrsta leik Palace

Brasilíumaðurinn með þrennu í fyrsta leik Palace
Canon

Mynd: Crystal Palace FC

Sambandsdeildarmeistarar Crystal Palace hófu undirbúningstímabilið á því að vinna öruggan 5-1 sigur á Swindon Town í dag.
Enski sóknarmaðurinn Eddie Nketiah skoraði tvennu fyrir Palace á tólf mínútum í fyrri hálfleik.

Pierre Sage, nýr stjóri Palace, gerði ellefu breytingar á liðinu í hálfleik og setti meðal annars inn brasilíska sóknarmanninn Matheus Franca sem gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu.

Hann gerði fyrsta markið á 55. mínútu og annað úr vítaspyrnu átta mínútum síðar. Átta mínútum fyrir leikslok fullkomnaði Franca þrennuna.

Brasilíumaðurinn sneri aftur til Palace í sumar eftir að hafa verið á láni hjá Vasco da Gama í heimalandinu.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.