Fotbolti.net
18.08.16 - 10:54
Magnús Már Einarsson

John Arne Riise til Indlands (Staðfest)

John Arne Riise til Indlands (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

John Arne Riise, fyrrum vinstri bakvörður Liverpool, hefur samið við Chennaiyn í Ofurdeildinni í Indlandi.

Hinn 35 ára gamli Riise lagði skóna á hilluna í sumar þegar hann hætti hjá Álasund í Noregi.

Riise hefur ákveðið að taka fram skóna á nýjan leik en hjá Chennaiyn mun hann leika undir stjórn Marco Materazzi.
„Í júní ákvað ég að taka pásu frá fótboltanum en ég alltaf haldið dyrunum opnum til að snúa aftur,\" sagði Riise.

Eiður Smári Guðjohnsen gæti einnig verið á leið til Indlands en hann hefur verið orðaður við FC Pune City.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.