18.08.16 - 07:00
Arnar Geir Halldórsson
Mario Gomez til Wolfsburg (Staðfest)

Mættur aftur í þýska boltann

Mynd: Getty Images

Mættur aftur í þýska boltann

Mynd: Getty Images

Þýska úrvalsdeildarliðið Wolfsburg hefur staðfest kaupin á þýsku markamaskínunni Mario Gomez.
Þessi 31 árs gamli framherji kemur til Wolfsburg frá Fiorentina en hann eyddi síðustu leiktíð á láni hjá Besiktas þar sem hann varð markakóngur tyrknesku deildarinnar með 26 mörk í 33 leikjum.
Gomez sló fyrst í gegn með Stuttgart og hjálpaði liðinu meðal annars að vinna þýsku Bundesliguna leiktímabilið 2006-2007. Hann var svo keyptur fyrir metfé til þýska stórveldisins Bayern Munchen og var hluti af liðinu sem vann þrennuna leiktímabilið 2012-2013.
Í kjölfarið yfirgaf Gomez heimalandið en er nú kominn aftur í Bundesliguna og mun hann væntanlega styrkja sóknarleik Wolfsburg til mikilla muna en liðið hafnaði í áttunda sæti á síðustu leiktíð.