Spænsk stórlið vilja Cucurella - Liverpool heldur áfram að reyna við Diomande - Arsenal hyggst fá Rogers og Kroupi
Venni: Fótboltinn breytist ekkert þó ég kaupi einhverja menn eða við spilum með ákveðnum hætti
Ray: Ég held að það sé bara bjart framundan hjá okkur
Kári Kristjáns: Mér líður bara ógeðslega vel hérna
Sjáðu rauða spjaldið á Brynjar Björn - „Síðasti séns að sjá þetta trix"
Sterkastur í 9. umferð - „Þetta var upp á líf og dauða fyrir okkur“
Maggi er ósáttur með mark Fylkis: Boltinn var aldrei inni
Heimir: Þurfum að setjast niður og læra af þessu
Sölvi Geir: Það fór smá um mann
Seinn á fund í gær en skoraði þrennu í kvöld: Fokking mikil sekt
Hemmi: Helvíti ódýr mörk og einstaklingsmistök
Siggi Höskulds: Leikmenn Stjörnunnar vilja greinilega hafa Jökul í starfi
Halli: Þurfum að hugsa okkar gang
Gunnar Heiðar: Ég vissi ekki að við ætluðum allt í einu að setja inn gjafaleik FM
Jökull vísaði í leikplan Arsenal þegar hann hrósaði Þór
Brynjar Björn um rauða spjaldið: Þetta er nú eina trixið sem ég kann
Luke Rae: Mér fannst aldrei líklegt að þeir myndu koma til baka
Skoraði draumamark en þarf að hætta tuða - „Kontra hann svo í Samúel”
Hilmar Árni: Það þarf oft lítið til að meiða okkur
Linta: Ég vil óska strákunum til hamingju
„Mér fannst þeir orðnir hræddir"
   sun 18. ágúst 2019 21:09
Kristófer Jónsson
Helgi Sig: Fúlt að taka ekkert út úr þessum leik
Helgi Sig var hundsvekktur með tap sinna manna
Helgi Sig var hundsvekktur með tap sinna manna
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Helgi Sigurðsson, þjálfari Fylkis, var að vonum hundsvekktur eftir 2-1 tap sinna manna gegn FH í Pepsi Max-deildinni í kvöld. Sigurmark FH kom á lokamínútu leiksins.

„Menn lögðu þvílíkt á sig og búnir að spila þennan leik mjög vel og auðvitað er fúlt að taka ekkert útúr þessum leik. FH-ingar eru með gott fótboltalið og þá má aldrei líta af þeim en heilt yfir spiluðum við vel í dag." sagði Helgi eftir leikinn.

Lestu um leikinn: FH 2 -  1 Fylkir

Fylkismenn byrjuðu leikinn mun betur og komust yfir snemma í seinni hálfleik með marki frá Ólafi Inga Skúlasyni. Við það virtust FH-ingar taka öll völd á vellinum og uppskáru sigur að lokum.

„Þeir eru á heimavelli og þeir þurfa að fara að sækja og við bökkum kannski að. Svo kemur þetta jöfnunarmark og sigurmarkið í lokin og það er hundfúlt. En við bara höldum áfram og mætum galvaskir í næsta leik."

Það hefur ekki farið framhjá neinum knattspyrnuáhugamanni að deildin er gríðarlega jöfn þetta sumarið. Fylkismenn sitja í áttunda sæti deildarinnar, fjórum stigum frá fallsvæði og sex stigum frá Evrópusæti.

„Þetta er búið að vera svona í allt sumar og ekkert sem að við erum ekki klárir í. Við tökum bara einn leik fyrir í einu og ætlum okkur að vinna næsta leik fyrst að við gátum ekki unnið þennan." sagði Helgi að lokum.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Slapp
banner