Það eru sjö leikir á dagskrá í íslenska boltanum í dag, þar af sex í Pepsi Max-deild karla.
Þar byrjar botnlið ÍBV á heimaleiki við KA. Í þann mund sem seinni hálfleikur verður flautaður á fer af stað hörkuslagur á Grindavík.
Grindvíkingar munu þar freista þess að stöðva nýliða HK sem hafa verið á blússandi siglingu og eru komnir upp í fjórða sæti. Sá leikur verður einnig sýndur beint á Stöð 2 Sport fyrir þá sem komast ekki á völlinn.
FH og Fylkir eigast svo við á Kaplakrikavelli áður en Stjarnan mætir ÍA í beinni útsendingu frá Garðabænum.
Tindastóll á þá leik við Augnablik í Inkasso-deild kvenna og eru einnig tveir leikir á dagskrá í 2. deildinni. Þar á meðal er toppslagur Völsungs gegn Gróttu og mætast liðin á Húsavíkurvelli.
Pepsi Max-deild karla
16:00 ÍBV-KA (Hásteinsvöllur)
17:00 Grindavík-HK (Mustad völlurinn - Stöð 2 Sport)
18:00 FH-Fylkir (Kaplakrikavöllur)
19:15 Stjarnan-ÍA (Samsung völlurinn - Stöð 2 Sport)
Inkasso deild kvenna
15:00 Tindastóll-Augnablik (Sauðárkróksvöllur)
2. deild kvenna
14:00 Leiknir R.-Sindri (Leiknisvöllur)
16:00 Völsungur-Grótta (Húsavíkurvöllur)
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir