Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 18. ágúst 2022 09:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Udinese vill fá Bellerín
Mynd: Getty Images
Það er ólíklegt að Hector Bellerín eigi sér mikla framtíð hjá Arsenal. Bellerín er 27 ára hægri bakvörður sem hefur verið á mála hjá Arsenal í tíu ár.

Á síðasta tímabili var hann lánaður til Real Betis á Spáni og í upphafi móts hefur hann ekkert komið við sögu hjá Arsenal.

Í dag er hann orðaður við ítalska félagið Udinese en önnur félög eru einnig orðuð við leikmanninn.

Udinese er að missa Brandon Soppy til Atalanta og er því að leita að nýjum hægri bakverði. Bellerín hefur einnig verið orðaður við Atletico Madrid og Real Betis.

Hann er á lokaári á samningi sínum við Arsenal og hefur verið fjallað um að hann vilji rifta samningi sínum við félagið.


Athugasemdir
banner
banner